Gamalt en gott

Baxter
Baxter
[Maverick 1998]

baxterÁrið 1999 fór ég á enn eina megaútsöluna hjá Japis og rakst á disk með alls óþekktri sænskri hljómsveit sem heitir Baxter. Diskurinn kostaði einungis 199 kr. þannig að ég skellti mér á hann. Daginn eftir mætti ég aftur í Japis og keypti upp lagerinn af þessari fyrstu plötuy Baxter sem heitir einfaldlega Baxter og hef verið að gefa vinum og vandamönnum í afmælisgjafir síðustu árin. Svona góður er þessi diskur.  

Hljómsveitina Baxter skipa Ricky Tillblad, Carl Herlöfsson og Nina Ramsby en þau komu eiginlega saman af tilviljun í kringum ´96-7. Ricky var einhver mega pródúsent og grafískur hönnuður sem rak sitt eigið fyrirtæki F+. Dag einn byrjar Nina að vinna hjá honum til að borga fyrir áhugamálið sitt sem er náttúrulega tónlist. Nokkru seinna byrja þau eitthvað að draga sig saman og semja tónlist í frítímanum. Svo hittir Ricky Carl og þeir fara í samstarf sem verður að Electic Bob sem gerði instrúmental drum&bass fyrir Primal Music. Svo þegar Carl og Nina hittast loksins verður Baxter til. Ári seinna eru þau búin að taka upp plötuna Baxter, gefa út hjá Primal í Evrópu en Maverick Recording Co. sem Madonna á gaf þau út í Bandaríkjunum. Tónlistin er ljúft og huggulegt stelpu drum&bass. Svolítið melónkólískir textar, fullt af strengjum og Nina syngur með mikilli tilfinningu og yndislegheitum.

 Á plötunni eru 10 lög og heitir það fyrsta Television en það er nýjasta smáskífan þeirra. “I wish I´d woke up, when you were sad.” Fyndið hvað er hægt að gera ljúfa tónlist með svona hröðum takti….það er hreint ótrúlegt að þetta skyldi vera frumburður hljómsveitarinnar. Næsta lag er uppáhalds lagið mitt Fading. “I would be anything without you, I could turn up being someone else and almost everything that needs to will be done.” Laglínurnar eru snilld, bassinn og strengirnir halda utan um lagið og í bakrunni heyrum við smá trompet en maður skilgreinir það sam ekki fyrr en við 3 hlustun. Ég hef aldrei heyrt klassísk hljóðfæri blandast svona vel við raftóna. Lag númer 3 er mjög stelpulegt og tilvalið í spilarann þegar maður er sorgmæddur eða bara á túr og heitir Love Again. “I need a friend, I need you.” Næsta lag er einnig alveg sérstaklega flott. Það heitir I Cant See Why en það er fyrsta smáskífan af plötunni. “I would be so glad if you could tell me why I don´t fit in.” Þetta eru tilfinningar sem við könnumst án efa öll við og er skemmtileg tilbreyting við r&b og rapptextana sem fjalla um hvað söngvarinn sé ýkt böst æði.  Ballad of Behaviour er næsta lag. Ég hef aldrei heyrt neitt líkt þessari tónlist. Það er greinilegt að þarna eru á ferð gamalreyndir tónlistarmenn. Enn og aftur fjallar textinn um óákveðna og óörugga stúlkukind. “Seems that I need you, seems that I do….seems I could call you, seems that I could. Wish I could tell you what it´s like, I havent been here in many years…I haven´t thought of you like this, I haven´t been here in many years.”  Ég viss um að margir hafa gengið í gegnum þetta og mér finnst þetta æði. Political er krúttlegt en jafnframt eitt harðasta lagið. Þarna er litla stúlkukindin orðin svolítið örugg, búin að fatta að gæjinn er ekkert eins æðislegur og í byrjun. “You will follow me to the end, you will see…..me.”  Taktarnir eru massakúl sem endranær og ég held að þau noti gamla farfísu eða eitthvað álíka og það kemur alveg einstaklega vel út. Síðustu fjögur lögin eru heldur keimlík en Possible og Oh My Love standa upp úr sem rómantísk melankólíulög. Oh My Love hefur píanó undirspil sem gefur því aðeins dýpri blæ en farfísan áður á plötunni. Sorgin lokar disknum, “Grief is a burden I can rely on.” 



Eins og þið eruð örugglega búin að fatta þá er þetta engin partýtónlist. Þetta er tónlist sem æðislegt er að hlusta á eftir rifrildi, ástarsorg, í rigningu og veseni. Við lendum öll í veseni. Róleg, falleg, yfirveguð og heillandi drum&bass tónlist er það besta í heimi.

myspace

baxter


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband